
Uppsetning forrita
Hægt er að flytja uppsetningarskrár í tækið úr samhæfðri tölvu, hlaða þeim niður
þegar vafrað er eða fá þær sendar sem margmiðlunarboð, sem tölvupóstsviðhengi
eða nota aðrar tengiaðferðir, svo sem Bluetooth.
Hægt er að nota Nokia Application Installer í Nokia Ovi Suite til að setja upp forrit í
tækinu.
Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Forritastjórnun
.
Uððsetningarskrárnar eru í möppunni Uppsetn.skrár og uppsettu forritin eru í
möppunni Uppsett forrit.
Eftirfarandi er sýnt með táknum:
SIS- eða SISX-forrit
Java-forrit
Græjur
Mikilvægt: Aðeins skal setja upp og nota forrit og annan hugbúnað frá
traustum aðilum, t.d. forrit með Symbian Signed eða forrit sem hafa verið prófuð
með Java Verified™.
Kanna skal eftirfarandi áður en forrit er sett upp:
•
Skoða gerð forritsins, útgáfunúmer og seljanda eða framleiðanda forritsins.
Veldu
Valkostir
>
Skoða upplýsingar
.
122 Önnur forrit

•
Skoða upplýsingar um öryggisvottorð forritsins. Veldu
Upplýsingar:
>
Vottorð:
>
Skoða upplýsingar
. Hægt er að stjórna notkun stafrænna vottorða
í Vottorðastjórnun.
Ef sett er upp skrá með uppfærslu eða lagfæringu á forriti er aðeins hægt að
endurheimta upphaflega forritið ef fyrir hendi er upphaflega uppsetningarskráin
eða fullkomið afrit af hugbúnaðarpakkanum sem var fjarlægður. Til að endurheimta
upphaflega forritið skaltu fyrst fjarlægja forritið og setja það svo upp aftur með því
að nota upphaflegu uppsetningarskrána eða öryggisafritið.
Nauðsynlegt er að hafa JAR-skrá til að setja upp Java-forrit. Ef skrána vantar getur
tækið beðið þig um að hlaða henni niður. Ef enginn aðgangsstaður er tilgreindur
fyrir forritið biður tækið þig um að velja aðgangsstað.
Uppsetning forrits
1 Finndu uppsetningarskrána í möppunni Uppsetn.skrár í Forritastjórnun eða
leitaðu að henni í Skráastjórnun eða í innhólfinu í skilaboðum.
2 Í Forritastjórnun velurðu möppuna Uppsetn.skrár, forritið sem setja skal upp og
Valkostir
>
Setja upp
. Í öðrum forritum velurðu uppsetningarskrána til að
hefja uppsetninguna.
Meðan á uppsetningu stendur birtir tækið upplýsingar um stöðu
uppsetningarinnar. Ef þú setur upp forrit án rafrænnar undirskriftar eða
vottorðs birtir tækið viðvörun. Þú skalt aðeins halda áfram að setja upp forritið
ef þú ert viss um uppruna þess og innihald.
Uppsett forrit opnað
Veldu forritið á valmyndinni. Ef forritið er ekki með sjálfgefna möppu skilgreinda er
það sett upp í möppunni Uppsett forrit í möppunni Forrit folder.
Sjáðu hvaða hugbúnaðarpakkar hafa verið settir upp eða fjarlægðir
Veldu
Valkostir
>
Skoða notkunarskrá
.
Önnur forrit 123

Mikilvægt: Tækið styður aðeins eitt vírusvarnarforrit í einu. Notkun fleiri en
eins vírusvarnarforrits getur haft áhrif á afkastagetu og virkni tækisins, eða valdið
því að það virki ekki.