Nokia 5250 - Úrræðaleit

background image

Úrræðaleit

Til að sjá svör við algengum spurningum um tækið, sjá þjónustusíður fyrir vöruna

á www.nokia.com/support.

Úrræðaleit 137

background image

Spurning: Hvert er lykilorðið mitt fyrir læsingar-, PIN- eða PUK-númerin?

Svar: Sjálfgefinn læsingarkóði er 12345. Hafðu samband við söluaðilann ef þú

gleymir læsingarnúmerinu. Ef PIN- eða PUK-númer gleymist eða ef ekki hefur verið

tekið við slíku númeri skal hafa samband við þjónustuveituna.

Upplýsingar um lykilorð fást hjá aðgangsstaðaþjónustu, t.d. netþjónustuveitu eða

símafyrirtæki.

Spurning: Hvernig loka ég forriti sem er frosið, þ.e. svarar ekki?

Svar: Haltu valmyndartakkanum inni.
Veldu forritstáknið, haltu því inni og veldu

Hætta

.

Spurning: Af hverju virðast myndir vera óskýrar?

Svar: Gakktu úr skugga um að hlífðargler myndavélarlinsunnar séu hrein.

Spurning: Hvers vegna eru alltaf upplitaðir eða skærir punktar á skjánum

þegar ég kveiki á tækinu?

Svar: Þetta er einkennandi fyrir þessa gerð af skjám. Á sumum skjám geta verið dílar

eða punktar sem lýsa annaðhvort stöðugt eða alls ekki. Hér er ekki um að ræða galla

heldur eðlilegan hlut.

Spurning: Af hverju finn ég ekki tæki vinar míns þegar ég nota Bluetooth?

Svar: Gakktu úr skugga um að tækin séu samhæf, að kveikt sé á Bluetooth og tækin

séu sýnileg. Gakktu einnig úr skugga um að fjarlægðin á milli tækjanna tveggja sé

138 Úrræðaleit

background image

ekki meiri en 10 metrar (33 fet) og að ekki séu veggir eða aðrar hindranir á milli

þeirra.

Spurning: Af hverju get ég ekki slitið Bluetooth-tengingu?

Svar: Ef annað tæki er tengt við tækið þitt getur þú slitið tengingunni í hinu tækinu

eða slökkt á Bluetooth-tengingunni í tækinu þínu. Veldu

Valmynd

>

Stillingar

og

Tengingar

>

Bluetooth

>

Bluetooth

>

Slökkt

.

Spurning: Hvað geri ég ef minnið er fullt?

Svar: Eyddu efni úr minni tækisins. Ef

Ekki er nægjanlegt minni fyrir aðgerð.

Eyddu fyrst einhverjum gögnum.

eða

Lítið minni er eftir. Eyddu einhverjum

gögnum úr minni símans.

birtist á skjánum þegar þú eyðir mörgum atriðum í einu

skaltu eyða einu atriði í einu og byrja á þeim minnstu.

Spurning: Af hverju get ég ekki valið tengilið fyrir skilaboðin mín?

Svar: Tengiliðaspjaldið inniheldur hvorki símanúmer, heimilisfang né

tölvupóstfang. Veldu

Valmynd

>

Tengiliðir

og viðeigandi tengilið, og breyttu

tengiliðaspjaldinu.

Spurning: Hvernig get ég slitið gagnatengingu þegar tækið kemur henni

alltaf á aftur?

Svar: Tækið kann að vera að reyna að sækja margmiðlunarskilaboð frá

skilaboðastöðinni. Til að stöðva tækið í að koma á gagnatengingu velurðu

Valmynd

>

Skilaboð

og

Valkostir

>

Stillingar

>

Margmiðlunarskilaboð

>

Móttaka margmiðlunar

. Veldu

Handvirkt val

til að skilaboðamiðstöðin visti

skilaboð sem verða sótt síðar eða

Óvirk

til að hunsa öll margmiðlunarskilaboð sem

berast. Ef þú velur

Handvirkt val

mun berast tilkynning þegar ný skilaboð bíða þín

Úrræðaleit 139

background image

á skilaboðastöðinni. Ef þú velur

Óvirk

kemur tækið aldrei á tengingu við

farsímakerfið vegna margmiðlunarskilaboða.

Til að stilla tækið þannig að það noti aðeins pakkagagnatengingu, ef þú ræsir forrit

eða aðgerð sem þarfnast hennar, skaltu velja

Valmynd

>

Stillingar

og

Tengingar

>

Stjórnandastill.

>

Pakkagögn

>

Pakkagagnatenging

>

Ef með

þarf

.

Ef það kemur ekki að gagni skaltu slökkva á tækinu og kveikja síðan á því aftur.

Spurning: Get ég notað Nokia-tækið sem faxmótald með samhæfri tölvu?

Svar: Þú getur ekki notað tækið sem faxmótald. Með því að nota símtalsflutning

(sérþjónusta) getur þú hins vegar beint mótteknum símbréfssendingum í faxnúmer.

Spurning: Hvernig á að stilla skjáinn?

Svar: Skjárinn er stilltur hjá framleiðandanum. Ef nauðsynlegt er að endurstilla

skjáinn velurðu

Valmynd

>

Stillingar

og

Sími

>

Snertiskjár

>

Kvörðun

snertiskjás

. Farðu eftir leiðbeiningunum.

Spurning: Hvers vegna fæ ég villuboðin Vottorð útrunnið eða Vottorð ekki

enn gilt þegar ég er að setja upp forrit sem hlaðið hefur verið niður?

Svar: Ef textinn

Vottorð útrunnið

eða

Vottorð ekki enn gilt

birtist, þó svo að

vottorðið ætti að vera gilt, skaltu athuga hvort rétt dag- og tímasetning er í tækinu.

Þú gætir hafa sleppt því að stilla dagsetningu og tíma þegar þú tókst tækið í notkun,

eða ef til vill hefur farsímakerfið ekki uppfært þessar stillingar í tækinu þínu. Til að

leysa málið velurðu

Valmynd

>

Stillingar

og

Sími

>

Símastjórnun

>

Frumstillingar

. Veldu upphafstillingarnar aftur og þegar tækið endurræsist skaltu

setja inn rétta dagsetningu og tíma.

140 Úrræðaleit