Myndir og myndskeið skoðuð
Veldu
Valmynd
>
Gallerí
og
Myndir/myndsk.
.
Myndum, hreyfimyndum og möppum er raðað eftir dagsetningu og tíma. Strjúktu
upp eða niður til að skoða skrárnar.
Til að opna skrá velurðu hana af listanum. Þegar mynd er skoðuð er hægt að skoða
næstu eða fyrri mynd með því að strjúka myndinni til vinstri eða hægri. Notaðu
hljóðstyrkstakka tækisins til að auka aðdrátt myndar.
Veldu
Valkostir
og svo úr eftirfarandi:
Breyta — Til að breyta myndskeiði eða mynd.
Nota skrá — Til að nota myndina sem veggfóður á heimaskjánum velurðu
Sem
veggfóður
.
Til að gera mynd að almennri hringimynd velurðu
Sem myndhringingu
.
Til að gera mynd að hringimynd tengiliðar velurðu
Setja við tengilið
.
Til að gera myndskeiðið að hringitón velurðu
Sem hringitón
.
Til að gera myndskeiðið að hringitón fyrir tengilið velurðu
Setja við tengilið
.
Gallerí 91
Tækjastikan auðveldar þér að velja algengar aðgerðir með myndum, myndskeiðum
og möppum.
Hægt er að velja úr eftirfarandi atriðum á tækjastikunni:
Senda — Til að senda tiltekna mynd eða myndskeið.
Breyta — Til að breyta tiltekinni mynd eða myndskeiði.
Eyða — Til að eyða tiltekinni mynd eða myndskeiði.