
Aukin ending rafhlöðu
Ýmsar aðgerðir tækisins ganga á rafhlöðu símans og draga úr endingu hennar. Til
að spara rafhlöðuna skaltu hafa eftirfarandi í huga:
•
Eiginleikar sem nota Bluetooth-tengingu eða leyfa slíkum eiginleikum að keyra
í bakgrunni meðan aðrir eiginleikar eru í notkun eyða meira af rafhlöðunni.
Slökktu á Bluetooth þegar þú þarft ekki að nota það.
•
Ef þú hefur valið
Pakkagagnatenging
>
Ef samband næst
í
tengingarstillingunum og ef það er engin pakkagagnatenging (GPRS) reynir
síminn reglulega að koma á pakkagagnatengingu. Til að lengja starfhæfan tíma
tækisins velurðu
Pakkagagnatenging
>
Ef með þarf
.
•
Ef sendistyrkur farsímakerfisins er breytilegur á þínu svæði verður tækið
reglulega að leita að tiltækum símkerfum. Þetta eykur orkuþörfina.
Hjálp 11

•
Baklýsing skjásins eykur orkuþörfina. Í skjástillingunum getur þú stillt birtustig
og breytt tímanum sem þú vilt að líði þar til slökkt er á baklýsingunni. Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Sími
>
Skjár
>
Birtustig
eða
Tímamörk ljósa
.
•
Keyrsla forrita í bakgrunni krefst aukinnar rafhlöðuorku. Til að velja forrit sem
ekki eru í notkun heldurðu valmyndartakkanum inni og velur forrit.