
Lykilorð
Hafðu samband við þjónustuveituna þína ef þú gleymir einhverjum af þessum
aðgangsnúmerum.
PIN-númer (Personal identification number) — Númerið hindrar að SIM-kortið sé
notað í leyfisleysi. PIN-númerið (4 - 8 tölustafir) fylgir yfirleitt með SIM-kortinu.
10 Hjálp

Þegar PIN-númerið er slegið rangt inn þrisvar sinnum er númerinu lokað og þá þarf
að slá inn PUK-númerið til að opna það.
PIN2-númer — Númerið (4 - 8 tölustafir) fylgir sumum SIM-kortum og er
nauðsynlegt til að geta notað suma valkosti tækisins.
Læsingarkóði (einnig kallaður öryggisnúmer) — Læsingarnúmerið hindrar að tækið
sé notað í leyfisleysi. Forstillta númerið er 12345. Hægt er að búa til og breyta
númerinu og láta tækið biðja um númerið. Haltu nýja númerinu leyndu og á
öruggum stað fjarri tækinu. Ef þú gleymir númerinu og tækið er læst þarftu að leita
til þjónustuaðila. Þú getur þurft að greiða viðbótargjald og persónulegum gögnum
í tækinu kann að verða eytt. Nánari upplýsingar færðu hjá Nokia Care þjónustuveri
eða söluaðilanum.
PUK- og PUK2-númer — Þetta númer (8 tölustafir) er nauðsynlegt til að breyta PIN-
númeri eða PIN2-númeri sem hefur verið lokað. Ef númerin fylgja ekki með SIM-
kortinu skaltu hafa samband við þjónustuveituna sem lét þig fá SIM-kortið.
IMEI-númer (International Mobile Equipment Identity number) — Þetta númer (15
eða 17 tölustafir) er notað til að bera kennsl á gild tæki á GSM-símkerfinu. Hægt er
að útiloka tæki, t.d. þau sem hefur verið stolið, af kerfinu. IMEI-númerið fyrir tækið
er að finna undir rafhlöðunni.