
Símtöl
1 Á heimaskjánum velurðu
Sími
til að opna númeravalið og slærð inn svæðis- og
símanúmerið. Tölu er eytt með því að velja C.
Ýttu tvisvar sinnum á * til að fá fram + merkið ef þú vilt hringja til útlanda (kemur
í stað alþjóðlega svæðisnúmersins) og sláðu inn landsnúmerið, svæðisnúmerið
(án 0, ef með þarf) og svo símanúmerið.
2 Ýttu á hringitakkann til að hringja í númerið.
3 Ýttu á hætta-takkann til að slíta símtali (eða hætta við að hringja).
36 Hringt úr tækinu

Það að ýta á hættatakkann lýkur alltaf símtali, jafnvel þó svo að annað forrit sé
opið.
Til að hringja úr Tengiliðum skaltu velja
Valmynd
>
Tengiliðir
.
Flettu að nafninu. Eða veldu leitarreitinn til að slá inn fyrstu stafi nafnsins og flettu
að nafninu.
Ýttu á hringitakkann til að hringja í tengiliðinn. Ef þú hefur vistað nokkur númer
fyrir tengilið skaltu velja tiltekna númerið af listanum og ýta á hringitakkann.