Nokia 5250 - Stillingar Kvikmyndabanka

background image

Stillingar Kvikmyndabanka

Á aðalskjá Kvikmyndabankans skaltu velja

Valkostir

>

Stillingar

og úr eftirfarandi:

Valskjár þjónustu — Til að velja þær myndefnisþjónustur sem þú vilt að birtist í

Kvikmyndabankanum. Einnig er hægt að bæta við,færa, breyta og skoða

upplýsingar um myndefnisþjónustu. Ekki er hægt að breyta myndefnisþjónustu sem

fylgt hefur tækinu.

Tengistillingar — Til að velja stað fyrir nettenginguna velurðu

Nettenging

. Til að

velja tengingu handvirkt í hvert sinn sem Kvikmyndabankinn kemur á nettengingu

velurðu

Spyrja alltaf

.

Til að kveikja eða slökkva á GPRS-tengingu velurðu

Staðfesta GPRS-notkun

.

Til að kveikja og slökkva á reiki velurðu

Staðfesta reiki

.

Barnalæsing — Til að stilla á aldurstakmark. Lykilorðið er það sama og

læsingarkóði tækisins. Upphaflega númerið fyrir læsingu er 12345. Í

kvikmyndaveitum eru myndskeið falin sem hafa sama eða hærra aldurstakmark en

þú hefur stillt á.

98 Nokia Myndefnisþjónusta

background image

Smámyndir — Veldu hvort hlaða á niður og skoða smámyndir í

kvikmyndastraumum.