Nokia 5250 - Aðalskjár Skilaboða

background image

Aðalskjár Skilaboða

Veldu

Valmynd

>

Skilaboð

(sérþjónusta).

Til að búa til ný skilaboð velurðu

Ný skilaboð

.

Ábending: Til að komast hjá því að endurrita skilaboð sem oft eru send skaltu nota

textana í möppunni Sniðmát í Möppurnar mínar. Einnig geturðu búið til og vistað

þín eigin sniðmát.

Skilaboð inniheldur eftirfarandi möppur:

Innhólf — Móttekin skilaboð, fyrir utan tölvupóstskeyti og skilaboð frá

endurvarpa eru geymd hér.

Mínar möppur — Raðaðu skilaboðum í möppur.

Pósthólf — Hægt er að tengjast við ytra pósthólf til að sækja nýjan tölvupóst

og skoða eldri tölvupóst án tengingar.

Drög — Drög að skilaboðum sem hafa ekki verið send.

54 Skilaboð

background image

Sendir hlutir — Síðustu skilaboðin sem voru send, fyrir utan þau sem voru send

um Bluetooth, eru vistuð hér. Hægt er að fækka eða fjölga skilaboðum sem eru

vistuð í þessari möppu.

Úthólf — Skilaboð sem bíða þess að verða send eru vistuð tímabundið í

úthólfinu, t.d. þegar tækið er utan þjónustusvæðis.

Skilatilkynningar — Hægt er að biðja símkerfið að senda skilatilkynningar fyrir

send texta- og margmiðlunarskilaboð (sérþjónusta).