Nokia 5250 - Umsjón með vottorðum

background image

Umsjón með vottorðum

Stafræn vottorð vernda efni við flutning á trúnaðarupplýsingum. Nota ætti slík

vottorð ef tengjast á netbanka eða öðru vefsvæði eða fjartengdum miðlara vegna

aðgerða sem fela í sér sendingu trúnaðarupplýsinga.
Einnig ætti að nota slík vottorð til að minnka hættuna á vírusum eða öðrum

skaðlegum hugbúnaði og tryggja áreiðanleika hugbúnaðar sem hlaðið er niður af

netinu og settur upp.
Veldu

Valmynd

>

Stillingar

og

Sími

>

Símastjórnun

>

Öryggi

>

Vottorðastjórnun

og veldu þá tegund vottorðs sem þú vilt nota.

Stafræn vottorð tryggja ekki öryggi heldur eru þau notuð til að staðfesta uppruna

hugbúnaðar.

Mikilvægt: Þó að notkun vottorða dragi verulega úr þeirri áhættu sem fylgir

fjartengingum og uppsetningu hugbúnaðar verður að nota þau rétt svo að aukið

öryggi fáist. Tilvist vottorðs er engin vörn ein og sér. Vottorðastjórinn verður að

vera með rétt, sannvottuð eða tryggileg vottorð svo að aukið öryggi fáist. Vottorð

Stillingar 133

background image

eru bundin tilteknum tíma. Ef textinn „Útrunnið vottorð“ eða „Vottorðið hefur enn

ekki tekið gildi“ birtist þó svo að vottorðið ætti að vera gilt skal athuga hvort rétt

dag- og tímasetning sé í tækinu.