
Snið án tengingar
Ótengt snið gerir þér kleift að nota tækið án þess að tengjast við farsímakerfið.
Þegar ótengda sniðið er valið er hægt að nota tækið án SIM-korts.
30 Tækið þitt

Virkja ótengt snið
Ýttu stutt á rofann og veldu
Án tengingar
.
Þegar þú virkjar ótengt snið lokast tengingin við farsímakerfið. Lokað er á allar
sendingar útvarpsmerkja til og frá tækinu til farsímakerfisins. Ef þú reynir að senda
skilaboð um farsímakerfið er þeim komið fyrir í úthólfinu þaðan sem þau eru send
síðar.
Mikilvægt: Í ótengdu sniði er ekki hægt að hringja, svara símtölum eða nota
aðra valkosti þar sem þörf er á tengingu við farsímakerfi. Áfram kann að vera hægt
að hringja í það neyðarnúmer sem er forritað í tækið. Eigi að hringja verður fyrst
að virkja símaaðgerðina með því að skipta um snið. Ef tækinu hefur verið læst skal
slá inn lykilnúmerið.