Nokia 5250 - Aðgerðir á snertiskjá

background image

Aðgerðir á snertiskjá

Banka og tvíbanka

Til að opna forrit eða aðra aðgerð á snertiskjánum smellirðu yfirleitt á skjáinn með

fingri eða skjápenna. En til að opna eftirfarandi atriði þarftu að tvíbanka á þau.

Atriði á lista í forriti, svo sem Drög í möppulistanum í Skilaboðum.
Ábending: Þegar listaskjár er opnaður er fyrsta atriðið auðkennt. Auðkenndi

hluturinn er opnaður með því að banka einu sinni á hann.

Forrit og möppur í valmyndinni þegar listaskjágerðin er notuð

Skrá á skráarlista, til dæmis mynd á mynda og hreyfimyndaskjá í Galleríinu.

Tækið tekið í notkun 23

background image

Ef þú bankar einu sinni á skrá eða svipaðan hlut opnast hann ekki heldur verður

hann auðkenndur. Til að sjá tiltæka valkosti fyrir hlutinn skaltu velja

Valkostir

eða velja tákn af tækjastiku ef það er í boði.

Veldu

Í þessum notendaleiðbeiningum er opnun forrita eða atriða með því að banka á

þau einu sinni eða tvisvar kallað að "velja". Ef velja þarf nokkra hluti í röð eru

valmyndaratriðin sem velja á aðskilin með örvum.

Til að velja

Valkostir

>

Hjálp

smellirðu á

Valkostir

og síðan

Hjálp

.

Draga

Til að draga seturðu fingurinn eða skjápennann á skjáinn og rennir honum yfir

skjáinn.

Til að fletta upp eða niður á vefsíðu dregurðu síðuna með fingrinum eða

skjápennanum.

Strjúka

Til að strjúka þá rennirðu fingrinum eða pennanum hratt til vinstri eða hægri á

skjánum.

24 Tækið tekið í notkun

background image

Þegar mynd er skoðuð er hægt að skoða næstu eða fyrri mynd með því að strjúka

myndinni til vinstri eða hægri.
Strjúktu yfir til að opna snertiskjáinn

Til að opna snertiskjáinn án þess að svara símhringingu skaltu strjúka frá hægri til

vinstri. Slökkt er sjálfvirkt á hringitóninum. Til að svara símhringingu skaltu ýta á

hringitakkann en til að hafna símtali skaltu ýta á endatakkann.
Strjúktu til að svara símtali.

Til að svara símtali strýkurðu frá vinstri til hægri.
Strjúktu til stöðva vekjaraklukku

Til að stöðva hringingu vekjaraklukku strýkurðu frá vinstri til hægri. Til að stilla

vekjara á blund strýkurðu frá hægri til vinstri.

Fletta

Til að fletta upp eða niður á lista sem er með flettistiku dregurðu til sleða

flettistikunnar.

Á sumum listaskjáum geturðu flett með því að setja fingurinn eða skjápennann á

atriði á listanum og draga það upp eða niður.

Til að fletta gegnum tengiliði seturðu fingurinn eða skjápennann á tengilið og

dregur upp eða niður.

Ábending: Til að skoða stutta lýsingu á tákni seturðu fingurinn eða skjápennann á

það. Ekki eru til lýsingar á öllum táknum.
Baklýsing snertiskjás

Ef skjárinn er ekki notaður í tiltekinn tíma slokknar á bakljósi hans.

Tækið tekið í notkun 25

background image

Til að kveikja á bakljósinu smellirðu á skjáinn.

Ef snertiskjárinn og takkarnir eru læstir kviknar ekki á ljósinu þótt smellt sé á skjáinn.

Til að taka skjáinn og takkana úr lás skaltu renna lásnum til.