
Niðurhöl
Eftir að hafa gerst áskrifandi að netvarpi á safnsíðu, með leit eða með því að slá inn
veffang geturðu sýslað með, hlaðið niður og spilað þætti í Podcasts.
Til að sjá hvaða netvarpsþáttum þú hefur gerst áskrifandi að skaltu velja
Podcasting
>
Podcasts
.
Til að sjá titla einstakra þátta (þáttur er ákveðin miðlunarskrá í netvarpi) velurðu
netvarpstitilinn.
Til að hefja niðurhalið velurðu titil þáttarins.
Til að hlaða niður (eða halda áfram niðurhali á) völdum eða merktum þáttum
velurðu
Valkostir
>
Hlaða niður
. Hægt er að hlaða niður mörgum þáttum á sama
tíma.
Til að spila hluta af netvarpi meðan á niðurhali stendur eða þegar því hefur verið
hlaðið niður velurðu það og
Valkostir
>
Spila sýnishorn
.
Netvörð sem hefur verið hlaðið niður að fullu vistast í Netvörp möppunni. Þau sjást
hins vegar ekki fyrr en safnið er uppfært.