
Ovi Music
Með Ovi Music (sérþjónusta) er hægt að leita að, skoða og hlaða tónlist niður í tækið.
Tónlistarversluninni verður síðar skipt út fyrir Ovi Music þjónustuna.
Veldu
Valmynd
>
Tónlist
>
Ovi-tónlist
.
Nauðsynlegt er að skrá sig fyrir þjónustunni áður en hægt er að hlaða niður tónlist.
Niðurhal á tónlist getur falið í sér viðbótarkostnað og stórar gagnasendingar
(sérþjónusta). Hafðu samband við netþjónustuveituna til að fá frekari upplýsingar
um gagnaflutningsgjöld.
Tónlistarmappa 79

Ábending: Ef til vill er fljótlegra að sækja tónlistina fyrst á tölvuna og nota svo
samhæfa USB-snúru til að afrita hana yfir á tækið.
Nauðsynlegt er að hafa gildan netaðgangsstað í tækinu til að geta opnað Ovi Music.
Þú verður e.t.v. beðinn að velja þann aðgangsstað sem á að nota þegar tengingu
við Ovi Music er komið á.
Mismunandi er hvaða stillingar eru í boði fyrir Ovi Music og hvernig þær líta út.
Stillingarnar kunna einnig að hafa verið settar upp fyrir fram og ekki er víst að hægt
sé að breyta þeim. Það kann að vera hægt að breyta stillingunum þegar leitað er í
Ovi Music.
Stillingum Ovi Music breytt
Veldu
Valkostir
>
Stillingar
.
Ovi Music er ekki í boði í öllum löndum eða svæðum.