
Lag eða netvarpsatriði spilað
Veldu
Valmynd
>
Tónlist
>
Tónlistarsp.
.
1 Veldu flokka til að leita að laginu eða netvarpsatriðinu sem þú vilt hlusta á.
2 Til að spila efni velurðu það af listanum.
Þú gætir þurft að uppfæra tónlistar- og netvarpssöfn eftir að hafa uppfært laga- eða
netvarpsval í tækinu. Til að setja alla tiltæka hluti í safnið velurðu
Valkostir
>
Uppfæra safn
.
Í sumum lögum er texti. Til að sjá textann velurðu
Valkostir
>
Sýna texta
.
Til að gera hlé á spilun skaltu smella á og til að hefja spilun á ný skaltu smella á
.
Spólað er hratt fram og til baka með því að halda inni eða .
Tónlistarmappa 75

Til að fara í næsta atriði velurðu . Til að spila aftur upphafið velurðu . Til að
hoppa yfir í fyrra atriðið velurðu innan 2 sekúndna eftir að spilun lags eða
netvarpsþáttar hefst.
Til að kveikja eða slökkva á handahófskenndri spilun ( ) velurðu
Valkostir
>
Spilun af handahófi
.
Til að endurtaka yfirstandandi atriði ( ), öll atriðin ( ), eða til að slökkva á
endurtekningu velurðu
Valkostir
>
Endurtaka
.
Við spilun á netvarpsatriðum er sjálfkrafa slökkt á stokkun og endurtekningu.
76 Tónlistarmappa

Hljóðstyrknum er breytt með því að ýta á hljóðstyrkstakkann.
Til að breyta hljómi lagsins skaltu velja
Valkostir
>
Tónjafnari
.
Til að breyta hljómburðinum og steríóstillingunni eða auka bassann skaltu velja
Valkostir
>
Stillingar
.
Til að fara aftur á heimaskjáinn og láta spilarann vera í gangi í bakgrunninum skaltu
ýta á hætta-takkann.
Til að loka spilaranum skaltu velja
Valkostir
>
Hætta
.