Nokia 5250 - Pörun tækja

background image

Pörun tækja

Veldu

Valmynd

>

Stillingar

og

Tengingar

>

Bluetooth

.

Hægt er að parast við samhæf tæki og sjá pöruðu tækin með því að opna flipann

Pöruð tæki

.

Fyrir pörun skaltu búa til þitt eigið lykilorð (1 til 16 tölustafir) og biðja eiganda hins

tækisins um að nota sama lykilorð. Tæki sem ekki eru með notandaviðmót eru með

fast lykilorð. Lykilorðið er aðeins notað einu sinni.
1 Til að parast við tæki skaltu velja

Valkostir

>

Nýtt parað tæki

. Tæki sem eru

á sendisvæðinu birtast.

2 Veldu tækið og sláðu inn lykilorðið. Slá verður sama lykilorð inn í hitt tækið.

3 Nokkrir hljóðaukahlutir tengjast tækinu sjálfvirkt eftir pörun. Til að tengjast

aukahlut að öðrum kosti velurðu

Valkostir

>

Tengjast við hljóðtæki

.

Pöruð tæki eru auðkennd með í tækjaleitinni.
Til að tilgreina tæki sem heimilt eða óheimilt skaltu velja úr eftirfarandi:

Stilla sem heimilað — Hægt er að koma á tengingum milli þíns tækis og heimilaðs

tækis án þinnar vitundar. Þú verður ekki beðinn sérstaklega um heimild eða

samþykki. Notaðu þessa stillingu fyrir þín eigin tæki, s.s. samhæft höfuðtól eða

tölvu, eða tæki þeirra sem þú treystir. táknar heimiluð tæki á skjá paraðra tækja.
Stilla sem óheimilað — Samþykkja þarf beiðnir um tengingu frá þessu tæki

sérstaklega hverju sinni.

Til að hætta við pörun tækis skaltu velja

Valkostir

>

Eyða

.

Til að hætta við allar paranir skaltu velja

Valkostir

>

Eyða öllum

.

112 Tengimöguleikar