Nokia 5250 - Um Bluetooth-tengingar

background image

Um Bluetooth-tengingar

Með Bluetooth-tækni er hægt að koma á þráðlausri tengingu við önnur samhæf

tæki, svo sem farsíma, tölvur, höfuðtól og bílbúnað.
Hægt er að nota tenginguna til að senda myndir, myndskeið, tónlist, hljóðskrár og

minnismiða, flytja skrár úr samhæfri tölvu og til að prenta myndir með samhæfum

prentara.
Þar sem tæki með Bluetooth-tækni nota útvarpsbylgjur til samskipta þurfa tækin

ekki að vera í beinni sjónlínu hvert við annað. Hin vegar þurfa þau að vera í innan

við 10 metra (33 feta) fjarlægð hvort frá öðru. Truflanir geta þó orðið á tengingunni

vegna hindrana eins og veggja eða annarra raftækja.

Tengimöguleikar 109

background image

Þetta tæki er samhæft við Bluetooth Specification 2.0 + EDR sem styður eftirfarandi

snið: bætt hljóðspilun, fjarstýring fyrir hljóð/myndskeið, grunnmyndvinnsla,

auðkenni tækis, upphringisamband, skráaflutningur, almenn spilun hljóðs/

myndskeiða, handfrjálst, höfuðtól, vöktun, aðgangur að símaskrá, SIM-aðgangur og

straumspilun á hljóði og mynd. Til að tryggja samvirkni milli annarra tækja sem

styðja Bluetooth-tækni skal nota aukabúnað sem eru viðurkenndir af Nokia fyrir

þessa tegund. Leita skal upplýsinga hjá framleiðendum annarra tækja um samhæfi

þeirra við þetta tæki.
Þau forrit sem notast við Bluetooth ganga á rafhlöðu símans og draga úr endingu

hennar.
Þegar tækið er læst er aðeins hægt að tengja það við leyfð tæki.