Stillingar símkerfis
Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Tengingar
>
Símkerfi
.
Veldu úr eftirfarandi:
Val á símafyrirtæki — Veldu
Sjálfvirkt
til að stilla tækið þannig að það leiti að og
velji eitt af þeim símkerfum sem eru í boði, eða
Handvirkt
til að velja símkerfi af
lista. Ef tengingin rofnar við símkerfið, sem valið var handvirkt, gefur tækið frá sér
hljóðmerki og biður um að símkerfi sé valið aftur. Símkerfið sem er valið verður að
vera með reikisamning við heimakerfið þitt.
Um endurvarpa — Láttu tækið gefa til kynna þegar það er notað í farsímakerfi
sem byggir á örbylgjutækni (MCN) og til að virkja móttöku upplýsinga frá
endurvarpa.