Nokia 5250 - Stillingar fyrir snertiinnslátt

background image

Stillingar fyrir snertiinnslátt

Veldu

Valmynd

>

Stillingar

og

Sími

>

Snertiskjár

.

Innsláttarstillingum fyrir snertiskjá er breytt með því að velja úr eftirfarandi:

Handskriftaræfing — Opna forritið fyrir handskriftaræfingu. Það þjálfar tækið í

að bera kennsl á rithönd þína. Þessi valkostur er ekki tiltækur á öllum tungumálum.

Tungumál texta — Skilgreina hvaða handskrifuðu sérstafi kennsl eru borin á og

hvernig sýndarlyklaborðið á skjánum lítur út.

Skrifhraði — Velja skrifhraða.

Leiðbeiningarlína — Sýna eða fela leiðbeiningarlínuna á ritunarsvæðinu. Með

leiðbeiningarlínunni er auðveldara að skrifa beint og hún auðveldar einnig tækinu

að bera kennsl á skriftina.

Breidd penna — Velja breidd texta sem er skrifaður með skjápenna.

Leturlitur — Velja lit skjápennaskriftarinnar.

Stillanleg leit — Kveikja á stillanlegri leit.

Kvörðun snertiskjás — Kvarða snertiskjáinn.

Textaritun 49