Nokia 5250 - Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki

background image

Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki
Tækið gengur fyrir endurhlaðanlegri rafhlöðu. Þetta tæki er ætlað til notkunar með BL-4U rafhlöðu. Hugsanlega verða

hægt að fá aðrar gerðir rafhlaðna frá Nokia fyrir þetta tæki. Tækið er ætlað til notkunar þegar það er hlaðið með

eftirfarandi hleðslutækjum: AC-3. Númer hleðslutækisins getur verið mismunandi eftir klónni sem er notuð. Gerð

klóarinnar er auðkennd með einu af eftirfarandi: E, EB, X, AR, U, A, C, K eða UB.

Hægt er að hlaða og afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð sinnum en að því kemur að hún gengur úr sér. Þegar tal- og biðtími

er orðinn mun styttri en eðlilegt er skal skipta um rafhlöðu. Aðeins skal nota rafhlöður sem samþykktar eru af Nokia og

aðeins skal endurhlaða rafhlöðu með hleðslutækjum sem Nokia hefur samþykkt til notkunar með þessu tæki.

Ef verið er að nota rafhlöðu í fyrsta skipti, eða ef rafhlaðan hefur ekki verið notuð í langan tíma, kann að vera nauðsynlegt

að tengja hleðslutækið, aftengja það síðan og tengja það aftur til að hefja hleðsluna. Ef rafhlaðan er alveg tóm geta liðið

nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn birtist á skjánum eða þar til hægt er að hringja.

Örugg fjarlæging. Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður en rafhlaðan er fjarlægð.

Rétt hleðsla. Taka skal hleðslutækið úr sambandi við rafmagnsinnstungu og tækið þegar það er ekki í notkun. Ekki má

hafa fullhlaðna rafhlöðnu í sambandi við hleðslutæki þar sem ofhleðsla getur stytt líftíma hennar. Fullhlaðin rafhlaða

tapar hleðslunni smátt og smátt ef hún er ekki í notkun.

Forðist mikið frost eða mikinn hita. Æskilegast er að rafhlaðan sé alltaf höfð í hita á bilinu frá 15°C að 25°C (frá 59°F að

77°F). Of mikill hiti eða kuldi draga úr endingu og líftíma rafhlöðu. Tæki með heitri eða kaldri rafhlöðu kann að hætta að

starfa tímabundið. Einkum hefur mikið frost takmarkandi áhrif á rafhlöður.

142 Vöru- og öryggisupplýsingar

background image

Ekki tengja framhjá. Skammhlaup getur orðið fyrir slysni þegar málmhlutur, svo sem mynt, bréfaklemma eða penni veldur

beinni tengingu milli + og - skautanna á rafhlöðunni. (Þau líta út eins og málmrendur á rafhlöðunni.) Til dæmis getur

þetta gerst þegar vararafhlaða er höfð í vasa eða tösku. Skammhlaup milli skautanna getur valdið skemmdum á

rafhlöðunni eða hlutnum sem veldur tengingunni.

Losun. Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem þær geta sprungið. Farga skal rafhlöðum í samræmi við staðbundin lög

og reglugerðir. Skila skal þeim í endurvinnslu þegar mögulegt er. Ekki skal fleygja þeim með heimilisúrgangi.

Leki. Ekki skal taka sundur, skera, opna, merja, beygja, gata eða tæta rafhlöður. Fari rafhlaðan að leka skaltu forðast að

hún komist í snertingu húð eða augu. Gerist það skal hreinsa svæði sem komast í snertingu við rafhlöðuna með vatni eða